Raftæki og rafrænn úrgangur

Hringrás tekur á móti öllum rafrænum búnaði og sér til þess að hann sé endurunnin samkvæmt viðurkenndum aðferðum. Endurvinnslan fer fram ýmist hér á landi eða erlendis.

Helstu flokkar raf- og rafeindatækja eru:

  1. Stór heimilistæki.
  2. Lítil heimilistæki.
  3. Upplýsingatækni- og fjarskiptabúnaður.
  4. Neytendabúnaður.
  5. Ljósabúnaður.
  6. Raf- og rafeindatæki.
  7. Leikföng og tómstunda-, íþrótta- og útivistarbúnaður.
  8. Lækningatæki.
  9. Vöktunar- og eftirlitstæki.
  10. Sjálfsalar.

Fræðsla um Raf-og rafeindatækjaúrgang

Raftæki sem hafa lokið líftíma sínum eru mikilvægt hráefni sem er endurheimt og endurnotað. Endurvinnsla hráefna úr raftækjum krefst  minni orku og veldur minni CO2 losun en hefðbundin námuvinnsla.

En í rafrænum úrgangi eru einnig ýmis mengandi efni sem geta mengað umhverfið við hefðbundna urðun. Rafrænn úrgangur er því skilgreindur spilliefni sem má ekki farga með almennu heimilis- og fyrirtækjasorpi.

Rafrænum úrgangi er komið í sérstök ruslaílát sem eru merkt með krossi á lokinu.

Endurvinnsla rafræns úrgangs er mikilvægur þáttur til verndar lífsnauðsynlegri hringrás náttúrunnar og án hennar myndum við ganga enn frekar á gæði jarðar.