Athafnasvæði Hringrásar í Reykjanesbæ er í Iðngörðunum í Helguvík (Berghólabraut 27).
Þar er tekið á móti brotajárni, hjólbörðum, raftækjum, spilliefnum og góðmálmum sem eru metnir til verðs og greitt fyrir. Einnig er nú tekið á móti bílum til úreldingar og fá þeir sem skila inn bílflaki skilagjaldið greitt samkvæmt gjaldskrá.
Brotajárn og önnur efni hafa verið flutt úr landi beint í gegnum Helguvíkurhöfn, sem minnkar verulega flutning á vegum og er hagstætt fyrir umhverfið.
Opnunartími:
Mánudaga- föstudaga frá 8:00-18:00.
Nánari upplýsingar fást í síma 660 6920 hjá Halldóri Jóhanni Grímssyni.
GPS hnit:
N64 1.63056
W22 33.637075
Kort:
Sjáðu stærra kort
(Smelltu á + og – til að stækka/minnka, og dragðu kortið til með músinni.)