Hringrás eða samstarfsfyrirtækið Vaka geta sótt bifreið sem á að fara í úreldingu. Ef bifreiðin er staðsett á höfuðborgarsvæðinu er hún sótt án endurgjalds fyrir eiganda bifreiðarinnar.
Einnig er tekið við bifreiðum sem á að úrelda í móttökustöðvum Hringrásar í Reykjavík, Fjarðarbyggð og Reykjanesbæ.
Nánari upplýsingar um förgun bifreiða er að finna á vef Vöku björgunarfélags: www.vakabilar.is.